Útsaumur – Refilsaumur þistill úr Maríuklæði

15.500 kr.

Útsaumur – Refilsaumur þistill úr Maríuklæði

Lagerstaða In stock

Útsaumur – Refilsaumur þistill úr Maríuklæði, falleg í ramma stærðin er 12 x 18 cm.  Refilsaumur er merkasta íslenska saumgerðin, útsaumur eftir frjálsum áteiknuðum mynstum sem þekktastur er af altarisklæðum frá síðmiðöldum. Heitið refilsaumur þekkist aðeins úr íslenskum heimildum.  Refilsaumur dregur nafn sitt af reflum, en reflar voru löng, tiltölulega mjó, lárétt veggtjöld er höfð voru til að tjalda innan híbýli manna og kirkjur á miðöldum.

Útsaumurinn er einfaldur refilsaumur þistill úr altarisklæði frá Arnarbæli í Ölfusi.  Einnig nefnd María himnadrottning frá Arnarbæli.

Hægt verður að sjá Maríuklæðið á sýningunni Með verkum handanna í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands.

Lesa má sér svo meira til um Refilsaum í fallegu bókinni „Með verkum handanna“ sem fæst hér.

Í pakkanum: Hvítt hörefni með áprentuðu mynstri, útsaumsbandi og nál. Leiðbeiningar fylgja með.

Þyngd 0.5 kg
Shopping Cart
Scroll to Top