Skilmálar

Almennt
Þjóðminjasafnið áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu pantana, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, varan reynist uppseld og einnig breyta verði eða hætta að bjóða uppá vörutegundir án fyrirvara. Ef pöntun hefur verið gerð þá mun starfsfólk láta vita af verðbreytingum eða leiðréttingu á verði áður en pöntunin er send af stað.

Pantanir og afhending
Þjóðminjasafnið tekur pöntun til afgreiðslu þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðslan berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti, í undantekningar tilfellum áskilur starfsfólk vefverslunar sér rétt til að staðfesta pöntun símleiðis eða í tölvupósti. 

Þegar þú verslar í vefverslun Þjóðminjasafnsins getur þú valið um að fá vöruna senda til þín með Póstinum eða sækja hana til okkar í Safnbúð Þjóðminjasafnsins Suðurgötu 41, 102 Reykjavík. Allar pantanir eru sendar með Póstinum innan tveggja virkra daga, sé pöntun gerð um helgi eða á frídegi, fer hún í póst næsta virka dag á eftir. Alla jafna tekur ferlið um 2-7 virka daga.

Með allar póstsendingar frá vefverslun gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. Þjóðminjasafnið ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Þjóðminjasafninu og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðilans.

Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram nema á þær pantanir sem sóttar eru í verslun Þjóðminjasafnsins, Suðurgötu 41.

Verð
Virðisaukaskattur er innifalinn í verði varanna. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða stafsetningarvillur og áskilur Þjóðminjasafnið sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.  

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vörum er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd og í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má innsiglið ekki vera rofið. Pöntunarnúmer sendingarinnar þarf að fylgja með. Sendingarkostnaður við skil er greiddur af kaupanda, nema ef um gallaða eða ranga vöru er að ræða.

Greiðslur
Hægt er að greiða fyrir pantanir með kredit- eða debit korti. Öll vinnsla kortanúmera er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda er tryggt.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda eru aldrei afhentar þriðja aðila, nema þær sem nauðsynlegar eru við að koma vörunum til skila eftir skráningarkröfum postur.is.

 

Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur vefverslunar Þjóðminjasafns Íslands á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 46/2000, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 81/2019 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Hvað varðar fresti sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 þá gilda þeir frá þeim degi sem vara hefur verið móttekin.

Karfa
Scroll to Top