Saumur I – Munnþurrka með blómamynstri. Hér hefur útsaumur af pilsi í vörslu Þjóðminjasafnsins verið endurgerður á munnþurrku (servíettu) eða sem diskamotta.
Mynstrið er skatterað blómamynstur á samfellu, saumuð og notuð af Margréti Egilsdóttur húsfreyju og sýslumannsfrú á Vatneyri í Vesturbyggð.
Gullfallegt mynstur á svörtu bómullarefni, mynstrið er vélsaumað í efnið úr gæða bandi. Stærð 35×35 cm.
Einnig til sem diskaþurrka, sjá hér.
Þjms. 10550.