Þórshamar silfurhálsmen með keðju

12.900 kr.26.900 kr.

Þórshamar silfurhálsmen með keðju, kemur í þrem stærðum.

Kross, oft kallaður Þórshamar, sennilega frá um 1000. Krossinn er í rómönskum stíl, gagnskorinn og með dýrshöfði á lengsta arminum, gerður úr silfri.

Þórshamar eða Mjölnir er talið hafa verið máttugasta vopn guðsins Þórs í baráttu hans við jötna. Frummyndin úr silfri, fannst í landi Foss í Hrunamannahreppi.

Stór: Hæð 4,5 cm, ca. 28 g sem er raunstærð upprunalega gripsins.

Miðstærð: 4 cm á hæð og ca. 20 g á þyngd.

Lítill: 2,5 cm og ca. 6 gr á þyngd

Þjms. 6077.

Nánar um upprunalega gripinn hér í sarpi

Hér er myndband af því hvernig Þórshamarinn verður til.

Þyngd 0.05 kg
Stærð

, ,

Karfa
Scroll to Top