Útskorin silfurhringur úr Viðey. Silfurhringur frá síðmiðöldum. Upprunalegi hringurinn er úr silfri en hefur verið algylltur.
Skreyttur utan með áfestu skrauti, blaðsprota með gotnesku A á.
Hringur þessi fannst í kálgarðinum í Viðey þar sem talið er að klaustrið hafi staðið og er talinn vera úr kaþólskum sið.
Hann var sendur Þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn af Steingrími biskupi Jónssyni í Laugarnesi árið 1843 sem gjöf frá Ólafi Stephensen sekretera í Viðey.
Þjms.10922/1930-333.