Útsaumur – Refilsaumur kross af Svalbarðsklæði

15.500 kr.

Útsaumur – Refilsaumur kross af Svalbarðsklæði

Lagerstaða In stock

Útsaumur – Refilsaumur kross af Svalbarðsklæði, fullkominn í ramma 14 x 16 cm.  Refilsaumur er merkasta íslenska saumgerðin, útsaumur eftir frjálsum áteiknuðum mynstum sem þekktastur er af altarisklæðum frá síðmiðöldum. Heitið refilsaumur þekkist aðeins úr íslenskum heimildum.  Refilsaumur dregur nafn sitt af reflum, en reflar voru löng, tiltölulega mjó, lárétt veggtjöld er höfð voru til að tjalda innan híbýli manna og kirkjur á miðöldum.

Útsaumurinn er einfaldur refilsaumur kross af Svalbarðsklæðinu sem segir sögu Jóns postula – Altarisklæði frá Svalbarði á Svalbarðsströnd.

Hægt verður að sjá Svalbarðsklæðið á sýningunni Með verkum handanna í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands.

Lesa má sér svo meira til um Refilsaum í fallegu bókinni „Með verkum handanna“ sem fæst hér.

Í pakkanum: Hvítt hörefni með áprentuðu mynstri, útsaumsbandi og nál. Leiðbeiningar fylgja með.

Þyngd 0.5 kg
Shopping Cart
Scroll to Top