Útsaumur – Öræfarós, 10×10 cm. Útsaumspakki sem inniheldur áhugaverð mynstur byggð á sjónabókum fyrri alda. Mynstrið öræfarós er hluti af margbrotinni /þríbrotinni áttablaða rós, afbrigði sem ekki þekkist utan Íslands svo vitað sé.
Byggt á mynstri úr sjónabók Jóns Einarssonar bónda og hagleiksmanns í Skaftafelli á 18. öld. Bókin hefur að geyma mörg mynstur ætluð til hannyrða og þykir mikil gersemi. Hún er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands.
Í pakkanum er mynstur og leiðbeiningar. 100% bómullar strammi, 10x10cm, 100% íslensk ull og nál


