Útsaumur – Hjónahnútur 13.8 x 20.8 cm strammi. Fallegur útsaumur sem inniheldur áhugavert mynstur byggt á sjónabókum fyrri alda.
Þetta mynstur er úr sjónabók frá 17. öld sem kennd hefur verið við Ragnheiði Jónsdóttur (1646–1715) biskupsfrú á Hólum í Hjaltadal. Bókin hefur að geyma mörg mynstur ætluð til hannyrða og er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands.
Hnútar af ýmsum gerðum voru algengir í hannyrðum hér áður.
Í pakkanum: Mynstur og leiðbeiningar. 100% bómullar strammi, 13.8×20.8cm, 100% íslensk ull og nál.


