Servíettur – mynstur, Sigurður Guðmundsson. Sigurður Guðmundsson málari (1829-1874) var merkur listamaður og hönnuður í nútímalegri merkingu þess orðs. Hann var áhrifamikill í þjóðlegum listum og fræðum og frumkvöðull að stofnun Þjóðminjasafns Íslands (1863).
Sigurður hannaði nýjan þjóðbúning íslenskra kvenna á 19. öld, sem notaður er enn í dag. Mynstrið á servíettunum er sótt í útsaumsmynstur sem hann teiknaði fyrir búningana, en fyrirmyndin að því eru íslenskar jurtir.
Servíetturnar eru mjúkar úr pappír, þær koma í beinhvítum lit með gylltu eða silfruðu mynstri.



