Sale!

Á elleftu stundu

Original price was: 10.850 kr..Current price is: 8.680 kr..

Á elleftu stundu bók um uppmælingarferðir dönsku arkitektarskólanna til Íslands.

Bók fyrir áhugasama um torfhús og aðra byggingarstíla á Íslandi.

Lagerstaða In stock

- +

Á elleftu stundu bókin, kom út eftir spennandi sýningu sem var í Ljósmyndasal Þjóðminjasafnsins árið 2022-2023. Bókin er samantekt af uppmælingarferðum dönsku arkitektaskólanna til Íslands.

Í upphafi áttunda áratugarins var aðeins búið í örfáum torfhúsum á Íslandi. Þau höfðu lokið hlutverki sínu eftir að hafa verið megingerð íslenskra húsagerðarlistar í meira en þúsund ár og týndu nú tölunni með ógnarhraða.

Íslenskur arkitektarnemi ýtti á að dönsku arkitektarskólarnir í Árósum og Kaupmannahöfn tækju að sér að skrá einstakan byggingarstíl íslendinga,  á áttunda áratugnum voru bæði torfhús og aðrar gamlar byggingar skrásettar. Þessi vinna vakti verulega athygli á mikilvægum menningararfi.

Bókin sem er ríkulega myndskreytt, veitir okkur innsýn í uppmælingarferðirnar, einstaka skráningu og viðleitnina við að varðveita fjölbreytta, upprunalega íslenska byggingararfleifð.

Á elleftu stundu bókin er 296 síður með fallegum myndum og teikningum. Höfundur er Kirsten Simonsen. Bók sem allir sem hafa áhuga á íslenskri byggingarlist þurfa að eignast.

Bókin er eingöngu á íslensku og dönsku.

 

Þyngd 1.8 kg
Shopping Cart
Scroll to Top