Ís við Hólmsá eftirprentun ljósmyndar. Ekki er vitað hvenær myndir var tekin. Hér sést fegurðin í smágerðum náttúrumyndum Gunnars. Samspil ljóss, birtu og endurvarps. Áhuginn sem birtist í mörgum myndum Gunnars virðist aðallega snúast um það hvernig ljósið fellur yfir landið eins og frá skaparans hendi og endurkastast af ísnum á Hólmsá.
Ljósmyndari: Gunnar Pétursson (1928–2002).
Eftirprentun af upprunalegu myndinni í réttum hlutföllum, prentað á 310 g ljósmyndapappír, A3 stærð. Myndin sjálf er 35×32.5 cm. Eftirprentun upprúlluð í pappírshólk.
Hér má finna finna hlekk á bók sem gefin var út í tilefni sýningarinnar Í ljósmálinu árið 2020.

