Kirkjur Íslands bindi 26-28. Vestfjarðarprófastsdæmi

5.490 kr.

Kirkjur Íslands bindi 26-28. Vestfjarðarprófastsdæmi.

Lagerstaða In stock

- +
Vörunúmer: 26 Flokkar: , , , ,

Hér eru útkomin bindi 26-28 í ritröðinni um Kirkjur Íslands. Ritröðin er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Ritin í þessum glæsilega bókaflokki opna sýn inn í menningarsögu okkar Íslendinga þar sem kirkjan er ekki aðeins musteri trúar og tilbeiðslu heldur einnig sýnileg táknmynd þess besta í byggingar- og listasögu þjóðarinnar á hverjum tíma. Í bindunum þremur, sem nú koma út, er fjallað um 28 friðaðar kirkjur í Vestfjarðaprófastsdæmi. Bindin eru prýdd fjölda ljósmynda, sem Ívar Brynjólfsson ljósmyndari Þjóðminjasafns hefur tekið, og teikningum af kirkjunum 28.

Ritstjórar: Þorsteinn Gunnarsson og Jón Torfason

Bls.1345

Þyngd 1.3 kg
Shopping Cart
Scroll to Top