Spessi 1990-2020. Pönkarinn í hópi íslenskra ljósmyndara, Spessi, er orðinn 65 ára. Það gefur tilefni til að horfa yfir höfundarverk hans og stöðu hans í heimi íslenskra sjónlista. Spessi skapaði nýja sýn á íslenskt samfélag í ljósmyndum sínum.
Inga Lára Baldvinsdóttir, úr formála bókar.
Í þessari yfirgripsmiklu ljósmyndabók er varpað ljósi á feril Spessa, Sigurþórs Hallbjörnssonar. Þar birtist hluti af þekktum verkum hans eins og Bensín, Hetjur og 111 í samtvinningu við óbirtar eða sjaldséðari ljósmyndir.
Með einstöku stílbragði í mannamyndatökum og vali á umfjöllunarefni sem felur oft í sér beitta samfélagsrýni hefur Spessi skapað sér sérstöðu á sviði listrænnar ljósmyndunar á Íslandi. Ferill hans spannar nú 30 ár og á þeim tímamótum er fullt tilefni til að miðla hans einstöku sýn á samfélagið.
Bókin er 192 blaðsíður, greinahöfundar eru Jón Proppé og Eiríkur Örn Norðdahl, ritstjóri er Linda Ásdísardóttir og hönnuður er Ámundi Sigurðsson.



