Útsaumur – Riddararós 25×25 cm, strammi. Fallegur útsaumur sem inniheldur áhugavert mynstur byggt á sjónabókum fyrri alda.
Þessi Riddararós er byggð á mynstri úr sjónabók Jóns Einarssonar bónda og hagleiksmanns í Skaftafelli á 18. öld. Bókin hefur að geyma mörg mynstur ætluð til hannyrða og þykir mikil gersemi. Hún er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands.
Í pakkanum er mynstur og leiðbeiningar. 100% bómullar strammi, 25×25 cm, 100% íslensk ull og nál.

