Silfurhnappur í keðju frá Skriðuklaustri, með blómamynstri. Eftirgerð úr silfri eða oxideruðu silfri.
Upprunalegi hnappurinn fannst í kirkjunni á Skriðuklaustri í Fljótsdalshreppi og er nú varðveittur á Þjóðminjasafni Íslands.
Hnappurinn er líklega frá 16. öld og gerður úr tini, blönduðu silfri. Nákvæmlega eins hnappur fannst við uppgröft við Skálholtskirkju á sínum tíma.
Skartgripirnir eru nákvæmar eftirgerðir unnar af Sigurði Inga Bjarnasyni gullsmið, stofnanda Sign.
Þjms.2004-36-694


