Minnisbækur – úr steinapappír. Fallegar 70 síðna minnisbækur, önnur er með sex gömlum íslenskum orðum yfir bók á forsíðunni, hin er með fallegu merki Þjóðminjasafnsins.
Bækurnar eru með línustrikuðum síðum gerðum úr náttúrulegum steinum. Áferðin á síðunum er ótrúlega mjúk þannig að skrifa á þær er ný upplifun. Forsíðan er úr endurunnum pappír og blaðsíðurnar úr pappír sem unnin er úr 80% kalksteini og 20% resin. Bókin er endurvinnanleg, flokkuð með pappír eða plasti.
*Engin tré voru felld við gerð þessara bóka.

