Mannsandlit í Borróstíl – hálsmen.
Kinga (silfur hálsmen) með mannsandliti í Borróstíl, frá 10. öld. Frummyndin er úr bronsi og lítur út eins og skrautkragi, aflangur og gengur niður í odd, en efst er hólkur til að þræða festi í. Gripur þessi hefur verið borinn í festi um hálsinn.
Fannst við Rangá, þar sem Gunnar á Hlíðarenda barðist og Hjörtur féll.
Steypt í silfur.
Þjms. 12384/1938-49
Nánar um upprunalega gripinn á Sarpi
