Segulrúnir Fúþarks. Það er gaman að lesa rúnir, þessar segulrúnir tengja nútíma stafrófið við rúnirnar. Þannig að núna getur þú skrifað nafnið þitt í rúnaletri.
Rúnir tilheyra stafrófi sem nefnist fúþark og var notað af víkingum. Fúþarkið á uppruna sinn að rekja til einhverra þeirra stafrófa sem tíðkuðust í löndunum umhverfis Miðjarðarhafið, aldirnar fyrir Kristsburð og bárust þaðan til Norður-Evrópu með Germönum.
Upphaflega fúþarkið, sem greina má í minjum víkinga allt frá 4. öld, innihélt 24 rúnir. Við lok 8. aldar, þ.e. upphaf víkingaaldar, hafði rúnum fækkað í 16.
