Samfara viðamikilli sýningu á verkum Vigfúsar Sigurgeirssonar, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmanns sem sýnd var í Þjóðminjasafni árið 2008. Gaf safnið út bókina Þjóðin, landið og lýðveldið – Vigfús Sigurgeirsson, ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður.
Vigfús var einn fremsti ljósmyndari Íslendinga um miðbik 20. aldar og frumkvöðull í íslenskri kvikmyndagerð og var framlag hans til íslenskrar menningarsögu því mikið.
Bókin hefur að geyma fimm greinar ýmissa sérfræðinga:
Hógvær ljósmyndari í stórbrotinni náttúru eftir Lindu Ásgeirsdóttur, safnvörð við Byggðasafn Árnesinga;
Íslendingar í heimi framtíðarinnar eftir Írisi Ellenberger, sagnfræðing;
Ljósmyndasýning Vigfúsar Sigurgeirssonar Ísland í Kunsthalle Hamborg 1935 og dvöl hans í Þýskalandi eftir Christine Stahl, forstöðukonu Alfred Ehrhardt Stiftung, Köln;
Orðlaust vald eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor, og Fortíðin fest á filmu eftir Ágúst Georg Ólafsson, safnvörð Þjóðháttasafns Þjóminjasafns Íslands.
