Vorið 2007 var gerður mikilvægur samningur á milli Þjóðminjasafns Íslands og Nordiska Museet í Svíþjóð um íslenska gripi í eigu þess. Í samningnum fólst að munirnir væru afhentir Þjóðminjasafni Íslands til ævarandi varðveislu. Árið 2008 var haldin sýningin Yfir hafið og heim í Þjóðminjasafninu þar sem munirnir voru sýndir.
Í bókinni gera Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir sérfræðingur og Lilja Árnadóttir safnvörður grein fyrir safnkostinum og söfnunarstarfinu. Sem leiddi til þess að Nordiska Museet eignaðist þessa íslensku gripi.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður skrifar formála bókarinnar.
