Ritið prýðileg reiðtygi veitir innsýn í þann þátt menningararfsins úr safnkosti Þjóðminjasafns Íslands sem sýndur er í Bogasal safnsins og tengist íslenska hestinum. Hér er meðal annars fjallað um söðla og það handverk sem var notað til að prýða þá. Rýnt er í drifið látún þar sem birtast blómstrandi jurtir og framandi dýralíf í heillandi myndum. Hin séríslensku glituðu söðuláklæði eru einnig til vitnis um listfengi þeirra sem sköpuðu þessa ríkulegu arfleifð. Ritstjóri er Anna Lísa Rúnarsdóttir. Greinahöfundar eru Ingunn Jónsdóttir, Ragnheiður Björk Þórsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir.
Ritið inniheldur samantekt á ensku / English summary.
Bókin er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu sem var í Bogasal Þjóðminjasafnsins 24.02 – 21.10.2018. / Published in connection with exhibition in the Arc Hall of the National Museum of Iceland 24.02 – 21.10.2018
Þjóðminjasafnið gaf út árið 2018.
