Víkinga tréhnífur í leðurslíðri fyrir yngstu víkingana. 35 cm langur hnífur úr beykitré, áprentuð skrautmynd á blaðinu og á slíðrinu.
Handfangið er vafið með bómullarbandi svo að vopnið renni ekki í hendi. Slíðrið er með bandi og er hægt að festa við beltislykkjur.
Hnífasettið er handgert í Þýskalandi, efniviðurinn er úr grisjuðum beykitrjám.
Tréleikföngin eru framleidd í litlu fjölskyldufyrirtæki sem fylgir evrópskum öryggisstöðlum (CE merkt).
