Sjö lykilgripir Þjóðminjasafnsins, í segulsetti. Á grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands, Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár, eru sjö lykilgripir sem allir eiga það sammerkt að hafa haft þýðingu í íslensku samfélagi bæði á sínum tíma en ekki síður í gegnum aldirnar.
Þeir eiga sinn sess með jöfnu millibili eftir því sem söguþráður sýningarinnar vindur fram frá upphafi byggðar og fram á tuttugustu öld.
Allir sjö lykilgripirnir eru íslenskir að uppruna en sumir þeirra eru þekktir víða um lönd.
Þeir bera vitni um listfengi og hagleik og hafa sterka þjóðfélagslega skírskotun hver á sinn hátt.
Þessa sjö lykilgripi eru flestir til sýnis á Þjóðminjasafninu.
