Púsl – Kumlið frá Hafurbjarnarstöðum. Nú er flott nýjung komin í Safnbúðina. Tvöfalt 40 bita púsluspil en það þýðir að á annarri hlið púslsins er teiknuð mynd af kumlinu frá Hafurbjarnarstöðum. Eins og það var þegar það var grafið upp. Á hinni hliðinni er teiknuð mynd af konunni eins og við höldum að hún hafi getað litið út þegar hún var lögð til hinstu hvílu.
Á kassanum eru upplýsingar sem lesa má úr beinum konunnar og líf hennar sem Joe W. Walser III sérfræðingur í mannabeinasafni Þjóðminjasafnsins útvegaði. Einnig er fræðsla um kumlið og teikningar af þeim hlutum sem fundust í kumlinu.
Púsl – Kumlið frá Hafurbjarnarstöðum er skemmtileg nýjung í minjagripavali Safnbúðar Þjóðminjasafnsins. Teikningarnar gerði Jóhanna Þorleifsdóttir listakona. Púslið er unnið í samstarfi við Safnfræðslu Þjóðminjasafnsins.
Púslið er í stærðinni A3 og er fyrir alla 3 ára og eldri.






