Saumur II – Diskaþurrka með blómstursaum. Hér hefur útsaumsmynstur af pilsi í vörslu Þjóðminjasafnsins verið endurgert á diskaþurrku (viskastykki).
Saumur II er blómstursaumur á samfellu, saumuð og notuð af Guðrúnu Skúladóttur, dóttur Steinunnar Björnsdóttur og Skúla Magnússonar landfógeta. Guðrún var annáluð hannyrðakona.
Gullfallegt mynstur á svörtu bómullarefni, mynstrið er vélsaumað í efnið úr gæða bandi. Stærð 40×75 cm.
Saumur – er textíl vörulína Þjóðminjasafnsins. Vörulínan byggist á gömlum útsaumum í vörslu Þjóðminjasafnsins.
Við höfum látið gera nytjahluti með mynstrunum þannig að sem flestir getið notið arfleifðar okkar allra.

