Jólasveinar 21. aldarinnar – póstkort.
Á þessum skemmtilegu teikningum Jóhönnu Þorleifsdóttur listakonu er búið að færa gömlu góðu íslensku jólasveinana inn í nútímann. Aldur þeirra virðist ekkert breytast, þeir eru komnir í nútímahorf og þeir eru nú þegar farnir að semja sig ýmsum siðum og ósiðum samtímans.
Hér erum við með jólasveinana, foreldrana Grýlu og Leppalúða og líka sjálfan jólaköttinn á póstkort. Þú getur valið kort eins og þú vilt eða keypt allan pakkann.
Tilvalið er að senda vinum og vandamönnum jólakort þessi jólin, deila þannig jólagleðinni og húmornum sem býr í örsögunni á bakhlið kortsins. Þar segir frá því hvaða breytingum fjölskyldan í fjöllunum hefur tekið á tækniöldinni.
Þú færð alla fjölskylduna saman hérna.














