Í ljósmyndabókinni Aðventa á Fjöllum eftir Sigurjón Pétursson og Þóru Hrönn Njálsdóttur sækja höfundarnir innblástur til Aðventu. Hinnar ódauðlegu skáldsögu Gunnars Gunnarssonar sem byggir á ævintýrum Benedikts Sigurjónssonar, Fjalla-Bensa, á þriðja áratug síðustu aldar.
Ljósmyndirnar sem prýða bókina eru afrakstur níu vetrarferða höfundanna um sögusviðið á Mývatnsöræfum.
Svæðið markast í vestri af Mývatni, í austri af Grímsstöðum á Fjöllum. Í norðri af Dettifossi og í suðri af Grafarlandaá.
Um stóran hluta svæðisins fór Fjalla-Bensi í sinni frægu eftirleit árið 1925 sem varð kveikjan að Aðventu. Hafði hann bækistöð í Sæluhúsinu við Jökulsá á Fjöllum.
Með ljósmyndum sínum hefur Sigurjóni tekist að fanga anda skáldsögu Gunnars. Er hver mynd studd tilvitnun í texta Gunnars sem Sigurjón valdi.

