Vigdís, forseti nýrra tíma, gjafakort. Árið 2020 fögnuðum við 90 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur forseta og einnig því að liðin voru 40 ár frá sögulegu kjöri hennar í embætti forseta Íslands. Af þessu tilefni var opnuð ljósmyndasýningin Vigdís, forseti nýrra tíma í Þjóðminjasafninu með myndum frá embættistíð Vigdísar.
Við þetta tækifæri útbjó Safnbúðin falleg tækifæriskort í gjafapakkningu með myndum af Vigdísi við ýmis embættisstörf.
Pakkningin inniheldur átta kort sem henta við öll tækifæri og gera merkisdaga betri.
Ljósmyndari, Gunnar Geir Vigfússon.




