Aftur Again Samtal við Conversing with Sigfús Eymundsson, eftir Einar Fal Ingólfsson.
Einstök ljósmyndabók þar sem Einar Falur fetar í fótspor Sigfúsar Eymundssonar, með myndatökum á sama stað en oft frá öðru sjónarhorni.
Þetta er þriðja verkefni Einars Fals þar sem hann leyfir liðinni tíð í myndverkum að móta sköpunina þegar hann tekst á hendur könnunarleiðangra. Að þessu sinni fetar hann í fótspor Sigfúsar Eymundssonar ljósmyndara og athafnamanns síns tíma en Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafninu varðveitir einstakt safn þessa helsta ljósmyndara landsins sem starfaði á 19.öld og fram á fyrsta áratug 20.aldar.
Ljósmyndunin sem Einar Falur fæst hér við, og vísað er til innan listfræðinnar sem endurljósmyndunar, er meira en sjónrænn vitnisburður um ólíka tíma eða hvernig umhorfs er á stöðunum sem listamennirnir völdu. Aðferð hans býður uppá dýpri túlkun, þar sem Einar Falur leggur fram sýna eigin sýn á staðina með sama miðli og Sigfús notaðist við. Þetta samspil fortíðar og nútíðar, listamanna og landslags, endurspeglar ekki aðeins virðingu fyrir sögulegri arfleifð heldur undirstrikar hvernig listin getur skapað tengsl milli tíma og rýmis.
Nú má segja að Einar Falur loki hringnum með fótsporaverkum sínum, eins og hann kallar þau, þegar hann fylgir eftir forgöngumanni íslenskrar ljósmyndasögu, Sigfúsi Eymundssyni, með þeirri sýningu og útgáfu sem Þjóðminjasafnið efnir nú til í samstarfi við listamanninn. Bókin Aftur Again Samtal við Conversing with Sigfús Eymundsson, er sjálfstætt verk og inniheldur fjölda ljósmynda eftir bæði Einar Fal og Sigfús – sem sýna Ísland í fortíð og samtíð.

