Sale!

Mannamyndir / The portrait of collection

Original price was: 2.500 kr..Current price is: 500 kr..

Mannamyndir er áhugaverð bók með völdum myndum og ítarupplýsingum um hverja mynd úr mannamyndasafni Íslands.

Lagerstaða In stock

- +

Mannamyndir / The portrait of collection er bók sem gefin er út í tilefni opnunar sýningar í Ljósmyndasal Þjóðminjasafnsins. Í Ljósmyndasafni Íslands er safnheild sem ber heitið Mannamyndasafn. Í þeirri deild er að finna ólíkar gerðir mynda, þar á meðal málverk, ljósmyndir, útsaumsverk og höggmyndir. Breiddin er mikil, frá því að vera skyndimyndir yfir í að vera ómetanleg listaverk. Þær eiga það sameiginlegt að sýna fólk.

Á sýningunni er safnkostinum gerð skil í gegnum 34 þemu sem ná ýmist yfir myndefni eða gerð mynda. Þar má til dæmis skoða elstu mannamyndina sem þekkt er á Íslandi, ljósmyndir af þátttakendum í fyrstu íslensku fegurðarsamkeppninni og myndir af ýmsum hópum, gömlum og nýjum.

Mannamyndasafnið var stofnað árið 1908 og var tilgangur þess að safna myndum af öllum Íslendingum. Í því eru yfir 60.000 myndir sem ná yfir 400 ár. Þær hafa að mestu leyti verið gjafir frá einstaklingum.

Bókin er 80 blaðsíður af ítarupplýsingum um safnkostinn á sýningunni.

Þyngd 0.5 kg
Shopping Cart
Scroll to Top