Lásbogi með þrem örvum. Með þessum skemmtilega lásboga geta allir víkingar, riddarar og áhugamenn um bogfimi, orðið lásboga skyttur.
Í settinu er lítill lásbogi með þremur örvum. Hægt að æfa sig í að skjóta í mark víða, m.a. heima við, í sumarbústaðnum og útilegunni.
Bogarnir eru þannig gerðir að allar örvar sem fylgja með eru með öryggisoddi og sogskál. Samkvæmt öryggisstöðlum á ekki að vera hægt að nota önnur skotfæri en þau sem fylgja með.
Boginn er 26 cm á lengd. Örvarnar eru 17 cm á lengd með sogskál.
Tréleikföngin eru framleidd í litlu fjölskyldufyrirtæki sem fylgir evrópskum öryggisstöðlum (CE merkt).


