Sale!

Teikning / Drawing – þvert á tíma og tækni

Original price was: 2.490 kr..Current price is: 500 kr..

Teikning / Drawing – þvert á tíma og tækni

Out of stock

Vörunúmer: a152 Flokkar: , , , , ,

Bók þessi er gefin út í tengslum við sýninguna Teikning – þvert á tíma og tækni í í Þjóðminjasafni Íslands 2012 – 2013.  Sýningarefnið var teikningar fjögurra listamanna gerðar annars vegar seint á 18. öld og hins vegar í upphafi 21. aldar.

Þetta eru teikningar stærðfræðingsins John Baines frá Edinborg, sem fæddur var árið 1754. Teikningar og grafíkmyndir eins þekktasta núlifandi myndlistarmanns á Norðurlöndum, Per Kirkebys frá Danmörku. Málverk og teikningar íslensku listakonunnar Önnu Guðjónsdóttur, sem hefur verið búsett í Þýskalandi í fjölda ára og verk Þóru Sigurðardóttur, myndlistarmanns og sýningarhöfundar.

Teikningar John Baines, sem gerðar voru í leiðangri Sir John Thomas Stanley til Íslands og Færeyja árið 1789. Miðla athugunum og greiningum vísindamannsins til áhorfandans. Myndir Kirkebys eru frá gönguferðum hans í Færeyjum og á Íslandi á árunum 2001 – 2008 og kallast á við jarðvísindalegan bakgrunn hans og vettvangsferðir um norðurslóðir. Nýleg verk Önnu Guðjónsdóttur hafa skýra vísun í könnunarferðir um lítt kannaðar slóðir.  Uppspretta grafískra teikninga Þóru Sigurðardóttur, frá 2011, er nánasta umhverfi og náttúra, hversdagsleg spor og ummerki tímans.

Þyngd 1 kg
Shopping Cart
Scroll to Top