Saumur II – Munnþurrka með blómstursaum. Hér hefur útsaumsmynstur af samfellu í vörslu Þjóðminjasafnsins verið endurgert á munnþurrku (servíettu ) eða diskamottu fyrir fallega skreytt borð.
Saumur II er blómstursaumur á samfellu, saumuð og notuð af Guðrúnu Skúladóttur, dóttur Steinunnar Björnsdóttur og Skúla Magnússonar landfógeta. Guðrún var annáluð hannyrðakona.
Fallegt mynstur á svörtu bómullarefni, mynstrið er vélsaumað í efnið úr gæða bandi. Stærð 35×35 cm.
Einnig til sem diskaþurrka sjá hér



