Bókamerki Hofstaðasýningar er byggt á höfuðkúpu konu sem fannst í kirkjugarðinum á Hofstöðum í Mývatnssveit. Konan var á sextugsaldri þegar hún lést. Greiningar á erfðaefni benda til keltnesks uppruna konunnar og að afkomendur hennar hafi líka verið greftraðir í kirkjugarðinum. Konan fékk nafnið Saga frá Hofstöðum í gegnum vinnuna við uppsetningu sýningarinnar.
The picture of Saga is a reconstruction made from the skull that was found at the excavation site in Mývatnssveit.

