Reykholtshringur, eftirgerð úr silfri af gullhring sem fannst í Reykholti árið 2005 í kór miðaldarkirkjunnar í Reykholti, Reykholtsdalshreppi.
Upprunalegi hringurinn er úr 18 karata gulli, sleginn, kúptur í miðju, með uppbrettum brúnum og skreyttur blaðskrauti í rómönskum stíl.
Hann er tímasettur um 1500, mögulega íslensk smíð.
The original gold ring is stored at the National Museum of Iceland.
Hringurinn er nákvæm eftirgerð, smíðaður af Inga Bjarnasyni gullsmið, stofnanda Sign.
Thjms.2005-25-161


