Sale!

Í ljósmálinu / In the light

Original price was: 6.990 kr..Current price is: 2.500 kr..

Í ljósmálinu / In the light

Lagerstaða In stock

- +

Bókin er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu sem var í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands 18.01.2020 – 30.08.2020.

Reykvíkingurinn og áhugaljósmyndarinn Gunnar Pétursson (1928-2012) myndaði af ástríðu alla ævi. Á sínum yngri árum ljósmyndaði hann borg og mannlíf á nokkuð einstakan hátt þar sem fletir, form og hreyfing voru ríkjandi þættir í myndfleti. Gunnar var virkur í félögum áhugaljósmyndara um miðja síðustu öld en gekk einnig snemma í Ferðafélag Íslands. Hann ferðaðist um hálendið og ósnortna náttúru landsins og hið óhlutstæða eða abstrakta varð leiðarþráður í öllum hans náttúrumyndum löngu áður en slíkt varð að hefðbundinni náttúrusýn. Verk Gunnars eru þjóðinni lítt kunnug en abstrakt verk hans teljast í dag mikilsvert framlag til ljósmyndasögu Íslands. Safn ljósmynda Gunnars frá ólíkum tímaskeiðum er að finna í þessari bók.

Steinar Örn Erluson vann að verkefni í rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns við Þjóðminjasafn Íslands á verkum Gunnars.  Ítarleg grein Steinars um myndsýn, verk og stöðu Gunnars í ljósmynda- og menningarlegu umhverfi síns tíma er viðfangsefni bókarinnar.

Rit Þjóðminjasafns Íslands 52. Í ljósmálinu / In the light.

Þjóðminjasafnið gaf út árið 2020.

Þyngd 1 kg
Shopping Cart
Scroll to Top