Konunglegur hirðljósmyndari. Bók um Ólaf Magnússon (1889-1954) ljósmyndara sem hófu störf þegar rétt var liðið fram á tuttugustu öld. Hann var í fremstu röð íslenskra ljósmyndara allt fram um miðja tuttugustu öld. Ljósmyndaraferill Ólafs var fjölþættur og hann var sérlega fundvís á nýjan vettvang í sinni ljósmyndun. Hér er gerð grein fyrir ljósmyndaferli Ólafs og framlagi hans til íslenskrar ljósmyndasögu í grein eftir Ingu Láru Baldvinsdóttur safnvörð við Þjóðminjasafnið.
Bókin er gefin út í tengslum við ljósmyndasýningu Þjóðminjasafnsins í Listasafni Reykjavíkur árið 2003.
