Lyklakippa Valþjófsstaðahurðarinnar. Falleg lyklakippa úr íslensku lerki, handgerð hjá FabLab á Austurlandi. Lerkið er frá Skógarafurðum, fyrirtæki staðsett á Víðivöllum ytri II í Fljótsdal – sama landssvæði og upprunalega Valþjófsstaðahurðin, sem veitir lyklakippunni sérstaka tengingu við fortíðina.
Myndin á lyklakippunni er af efri kringlunni á Valþjófsstaðahurðinni, en upprunalega hurðin er frá 1200. Mynstrið á lyklakippunni er af riddara að bana dreka og bjarga ljóni úr klóm drekans. Ljónið fylgir riddaranum eftir þetta og leggst að lokum syrgjandi á leiði riddarans.




