Ef garðaálfar gætu talað, bókin og sýningin er afrakstur vinnu ljósmyndaranna Sigríðar Rut Marrow og Þórdísar Erlu Ágústsdóttir. Bókin fjallar um heimsóknir þeirra í hjólhýsabyggðina á Laugarvatni, menningarheim sem fæstir þekkja vel til. Slík sumarþorp bera vott um nostur og hlýju íbúanna. Fólk byggði sér sólpall og girti af til að gera skikana skjólsælli, gróðursetti og skreytti umhverfi sitt með garðálfum og öðrum fallegum hlutum.
Þegar Sigríður og Þórdís byrjuðu að mynda var það vegna áhuga á samfélaginu sem þar hafði myndast, glaðsinna fólk að sinna sínu og þessi léttleikandi lífstíll sem einkenndi samfélagið og vakti áhuga ljósmyndaranna.
Verkefnið breyttist þegar yfirvöld ákváðu að loka byggðinni og fólki var gert að fjarlægja allt sitt hafurtask. Þessar ljósmyndir eru því orðnar hluti af sögu sem er liðin.
Samnefnd ljósmyndasýning frá hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni, er núna sýnd í Ljósmyndasal Þjóðminjasafnsin. Sýningin stendur yfir frá 23.september 2023 til 14.febrúar 2024.

