Gullöldin, myndir og minningar Rúnars Gunnarssonar.
Hvernig var Reykjavík og mannlífið í borginni á seinni helmingi 20.aldar? Svar við þessari spurningu er að finna í miklu og ómetanlegu ljósmyndasafni Rúnars Gunnarssonar. Rúnar sem er fæddur árið 1944, fékkk myndavél í fermingargjöf og hefur síðan nánast aldrei skilið myndavélina við sig. Í bókinni eru ekki eingöngu ljósmyndir. Hún geymir einnig afar fróðlegan sjálfsævisögulegan inngang með ljósmyndasögulegu ívafi auk smásagna sem vekja upp ljúfar en einnig ljúfsárar minningar frá öldinni sem leið. Í tilefni sýningarinnar „Ekki augnablikið heldur eilífðin“ í Myndasal Þjóðminjasafnsins fékk Safnbúðin nokkur eintök til sölu, en bókin er uppseld hjá útgefanda.

