Víkingaskjöldur – Eric, villti víkingurinn. Skjöldurinn er úr tré og á honum er bogadregin rauð/grá hönnun í fallegri þrívídd.
Skjöldurinn er með tveimur leðurólum á bakhlið. Á framhliðinni er málmhnúður (skjaldarbóla) til að verjast höggum.
Með þessum skildi getur ungur víkingur (eða LARP-ari) barist í fremstu víglínu.
Eric skjöldurinn er 41 cm í þvermál. Handgerður í Þýskalandi, efniviðurinn úr grisjuðum beykitrjám. Tréleikföngin eru framleidd í litlu fjölskyldufyrirtæki sem fylgir evrópskum öryggisstöðlum (CE merkt).
