Saumur III – Munnþurrka með holtasóleyjarmynstri. Hér hefur útsaumsmynstur af pilsi í vörslu Þjóðminjasafnsins verið endurgert á munnþurrku (servíettu) sem má líka nota sem diskamottu.
Mynstrið er skatterað holtasóleyjarmynstur á pilsi sem var hluti af skautbúningi Ragnheiðar Hafstein. Eiginmaður hennar var Hannes Hafstein ráðherra. Ekki er vitað hver saumaði búninginn.
Fallegt gyllt og bronsað mynstur á svörtu bómullarefni, vélsaumað í efnið úr gæða bandi. Stærð 35×35 cm.
Einnig til sem diskaþurrka, sjá hér
Saumur línan – byggist á eftirgerðum af gömlum útsaum sem er í vörslu Þjóðminjasafnsins. Við höfum látið gera nytjahluti með mynstrunum á, svo fleiri getið notið arfleiðar okkar allra.



