Hinir heimsfrægu Lewis taflmenn – stakir. Fallegar og nákvæmar eftirgerðir af Lewis taflmönnum, þú getur valið um að kaupa þá hvern fyrir sig eða allt settið hér.
Upprunalegu taflmennirnir eru í Breska þjóðminjasafninu (British Museum). Þeir fundust á eyjunni Lewis (Ljóðhúsum) sem er hluti Suðureyja, norðvestur af Skotlandi. Sú tilgáta hefur verið sett fram að taflmennirnir hafi verið skornir út á Íslandi af Margréti hinni högu í smiðju Páls Jónssonar biskups í Skálholti á árabilinu 1180–1200. Til verksins voru notaðar rostungstennur. Hér er hægt að fá bók sem fjallar nánar um þessa merku taflmenn.
Eftirlíkingarnar eru gerðar úr Resin.





