Lewis tafl í smágerðri útgáfu
Gullfallegt smágert taflsett. Nákvæm eftirmynd af Lewis taflmönnunum í fallega útskornu boxi, sem nýtist sem taflborð og er einnig fallegt sem borðskraut. Boxin koma í tveimur litum, grábrúnu og beinhvítu.
Upprunalegu taflmennirnir eru í Breska þjóðminjasafninu (British Museum). Þeir fundust á eyjunni Lewis (Ljóðhúsum) sem er hluti Suðureyja, norðvestur af Skotlandi. Sú tilgáta hefur verið sett fram að taflmennirnir hafi verið skornir út á Íslandi af Margréti hinni högu í smiðju Páls Jónssonar biskups í Skálholti á árabilinu 1180–-1200. Til verksins voru notaðar rostungstennur. Hér eru upplýsingar um bók sem fjallar nánar um þessa merku taflmenn og tilgátu um íslenskan uppruna þeirra.
Eftirlíkingarnar eru gerðar úr Resin.