Umhverfisvænir fjölnota taupokar með áprentuðum gömlum íslenskum orðum yfir poka á annarri hliðinni og myndmerki Þjóðminjasafnsins á hinni.
Pokarnir eru gerðir úr 100% endurunnu hráefni, 60% endurunninni lífrænni bómull og 40% endurunnum plastflöskum.
Pokarnir fást í tveimur litum, hvítir með rauðu letri og svartir með gylltu letri.